Friday, August 10, 2007

Skelfing í skólum


Eins og mörgum ætti að vera orðið ljóst, þá hafa sumir ákveðið að verja æsku landsins fyrir óæskilegum heilaþvotti innann skólaveggja þessa lands .

Baráttan er orðin ansi harðvítug, og titringurinn mikill .
Veslings foreldrarnir óttast það meir en fíkniefnamisnotkun og ótímabæra þungun, að börnin snúist til kristinnar trúar .

Tilhugsunin um að börnin geti ekki sleppt frá sér nýja testamenntinu eftir ferminguna, er að bera marga ofurliði .

Þessi hópur foreldra ber því við í sinni örvæntingafullu nauðvörn, að börnin gætu villst frá kynvillu og öðrum eðlilegum lífsháttum ef Jesú er nefndur of oft á nafn í skólanum .


Og til að börn þessa fólks verði örugglega ekki kristnidómi að bráð, hefur þetta óttaslegna fólk brugðið á ýmis ráð til að tæla þau frá hættulegum biblíulestri .

En þau eru yfirleitt þessi : Lána þeim bílinn á rúntinn, kaupa handa þeim bjór og jafnvel tóbak .
Láta þau óáreitt í vafasömum tölvuleikjum .
Kaupa nóg af dóti sem heldur athygli þeirra í viku .

Vonandi skilar svona uppeldi krökkunum inná eðlilegar brautir lífsins, og væntanlega anda foreldrar léttar er öll einkenni kristni hverfur endanlega úr skólum ( Kristnifræðikennslan, jólaföndrið, litlu jólin, og páskafríið )
Eða hvað ?

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home