Fjölskyldur neyða stúlkur til sjálfsmorða

Sænsk yfirvöld hafa af því miklar áhyggjur að fjölskyldur ungra stúlkna neyði þær til þess að fremja sjálfsmorð til þess að bjarga heiðri fjölskyldunnar. Um leið firra þær fjölskyldurnar hugsanlegum ákærum fyrir heiðursmorð. Þótt þetta hafi ekki farið hátt er þetta svo algengt að það er jafnvel til nafn fyrir þessar stúlkur. Þær eru kallaðar Svalastúlkurnar, því sumar þeirra ráða sér bana með því að stökkva fram af svölum. Fulltrúi sænsku lögreglunnar sagði í samtali við sænska útvarpsstöð að stúlkurnar fengju sjálfar að velja aðferðina; taka pillur, hengja sig eða stökkva fyrir járnbrautarlest. Lögfræðingurinn Elísabet Fritz, sem fæst við rannsókn á heiðursmorðum segir að þrjár af hverjum fimm stúlkum sem leiti til hennar segi að fjölskyldurnar segi; "Ef þú gerir ekki eitthvað sjálf, þá gerum við það."þessi frétt er tekinn af fréttvef vísi.is þann 16okt.-06Þetta er nú það sem svíar uppskera hjá sér vegna þess að þeir gerðu engar ráðstafanir hjá sér varaðandi innflytjendur og þá sérstaklega varðandi múslima.Einnig hafa múslimar í Svíþjóð farið fram á sérlög í landinu sem snýr eingöngu að múslimum og vilja þeir fara fram á að múslimsk börn fái kennslu í íslam og að stelpur og strákar fari ekki saman í sund.Er þetta það sem við á Íslandi viljum fá til okkar, ég segi nei takk, við þurfum að passa upp á að fólk sem hingað kemur aðlagist okkar menningu, sérstaklega múslimarnir.

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home