Sunday, August 19, 2007

Siðhnignun nálgast hættumörk


Nú hefur ungur og efnilegur (?) maður opnað síðu er ber nafnið klám .is og auglýsir eftir fólki til kynferðislegrar stuttmyndagerðar .

Það er með ólíkindum að maðurinn komi fram í sjónvarpsviðtali, og ræði um þetta sjúklega áhugamál sitt .

Einu sinni var maður stoltur Íslendingur, og ræddi við erlent fólk um fagurt Íslenskt kvenfólk, sterka karlmenn, og ljúffengan mat .

Nú er maður hins vegar flóttalegur og skömmustulegur Íslendingur, sem forðar sér er útlendingarnir spurja um kárahnjúka, kvóta og klámvæðingu .
Nú er bara að pakka niður, og vona að netsamband sé á jan mayen .

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home