frettir123

Tuesday, July 28, 2009

Eiga samkynhneigðir að ala upp börn ?

´´Eg myndi frekar vilja alast upp hjá samkynhneigðum en mönnum eins og þér enok.... enda er það sannað mál að stór hluti barna sem alast upp við ofurtrú verða sjálf geðsjúklingar.

Samkynhneigð er náttúruleg og ekkert athugavert við hana.. trú er manngert dogma til að stýra vitleysingum og græðgispúkum...

Ertu í góðum tengslum við "vættir" ?

Þetta er það sem Guð varar við ! Þarna eru á ferðinni öfl úr heimi þess illa, og þau geta auðveldlega birst í ljósengils mynd ! Látið ekki blekkjast ! ! !

http://visir.is/article/20090728/FRETTIR01/550726954/-1

Skattar

Nú er farinn af stað herferð til að stemma stigu við svartri vinnu, svo auðveldara verði fyrir ríkið að borga fyrir óreiðu bankamanna og "viðskiftasnillinga"

Í raun ættu launþegar nú að hefja herferð til að vinna eingöngu svarta vinnu, svo að hægt sé að losna við þá leiðindatilfinningu að þeir séu að þræla sér út til að borga fyrir afglöp græðgissinnaðra bankamanna, og viðskiftamógúla .
Nei, auðvitað eykst svört vinna í kjölfar hækkandi skatta sem munu brátt dynja á landanum .
Mér dettur ekki í hug að kjafta frá skattsvikurum, eða öðrum þeim sem ætla að koma sér undann aukinni skattpíningu stjórnvalda . En þú ?

Sunday, July 19, 2009

ESB

Til hamingju íslendingar, þar sem við erum farin að stýga skrefið að alþjóðasamfélagi framtíðar. Vitanlega verðum við að taka eitt skref í einu og flýta okkur ekki um ráð fram, en það er gott af því að vita, að við viljum og stefnum að því að komast út úr þröngsýni fortíðar.
Að vera sjálfstæður, hefur ekki þá mekingu að geta veitt vilja sínum fram , án þess að taka tillit til aðstæðna, en það höfum við nú þegar gert og hafa margir þurft að sitja í súpunni vegna þessa. Sjálfstæði er að geta lifað í sátt við Guð, menn og aðra menningaheima, því við erum eins og dropinn sem dettur í úthafið og verður að einu úthafi.
Fortíðin hafði sína góðu og slæmu hliðar, en hún átti sínar framfarir í átt að okkar tímum, þótt átök yrðu að vera farvegurinn.
Megi Guð leiða okkur veginn fram.

Monday, July 13, 2009

Plágur

Jæja, þá eru svíar byrjaðir að glíma við moskítóplágu .
Spádómar opinberunarbókarinnar í bullandi uppfyllingu, og það styttist óðfluga í endurkomuna miklu .

Þar er alveg sama hvað doctore hamast við, þetta verður ekkert umflúið . En hægt er að sigla sæmilega í gegnum erfiðistu kaflana, ef trúin er fyrir hendi .

http://visir.is/article/20090712/FRETTIR02/687001780

Sunday, July 05, 2009

Mál málanna.

Hefurðu eitthvað fram að leggja um mál málanna. Þá segðu skoðun þína eða segðu þá ekki neitt.

"Sæll er sá maður sem ávallt er var um sig. en sá sem herðir hjarta sitt fellur í ógæfu"
"Þegar hinir óguðlegu komast upp þá fela menn sig. En þegar þeir tortímast, þá fjölgar réttlátum"